Fjörðurinn okkar

Fjörðurinn okkar með fjöllin sín háu,

fallega bæinn á austfirskri byggð.

Blessaða landið með býlin sín smáu,

þér best hefur dugað þín íslenska tryggð.

 

Byggðin þín fríða hér blessist og dafni,

bjartsýni og framtak hér eiga sinn vörð.

Lánið þér fylgi með lukku í stafni,

lífið það blómgist við Eskifjörð.

 

Blessist um aldur þín byggð og þín saga,

börnin þín standi um fjörðinn sinn vörð.

Lánið þér fylgi með lukku í stafni,

ljómi alltaf fegurst  við Eskifjörð.

 

Texti:  Aðalbjörn Úlfarsson

Lag:  Þorvaldur Friðriksson

 

- Til baka -